Skilmálar Lækjartorg
Þjónusta sem Lækjartorg býður
Lækjartorg er borða- og hilluleiga þar sem hönnuðir, listafólk og smáframleiðendur geta sýnt og
selt vörur sínar. Við bjóðum:
- Afgreiðslukerfi sem Lækjartorg hefur umsjón yfir.
- Leiguaðstöðu á fjölförnum og áberandi stað með mikla umferð ferðamanna.
- Starfsfólk á gólfi sem aðstoðar við sölu og grunnuppstillingu.
- Svæði til að gera vörur klárar, miðar með verðmerkingu, snyrting, eldhús o.fl.
- Hillur, borð og/eða veggpláss.
- Myndavéla- og eftirlitskerfi.
- Greiðslumiðlun/posi svo viðskiptavinir geti greitt með korti; netgreiðslumöguleikar eftir atvikum.
- Kynningarefni frá Lækjartorgi á eigin miðlum og valin tækifæri til að auka sýnileika.
- Ath: Lækjartorg á engar vörur, ákveður ekki verð og er ekki ábyrgur fyrir söluhagnaði umfram samningsbundna þóknun.
- Leigjandi rekur í reynd „litla verslun“ á sínu sölusvæði meðan á leigutíma stendur.
Bókanir og afbókanir
- Bókanir fara fram á heimasíðu Lækjartorgs en upplýsingar um bókunarmöguleika er hægt
að fá á staðnum eða í gegnum tölvupóst/síma. - Afbókun þarf að berast minnst 7 dögum fyrir upphafsdag leigutímabils til að fá
endurgreiðslu. Til að nýta rétt til endurgreiðslu þarf að mæta í Lækjartorg og/eða senda
tölvupóst á info@laekjartorg.is. - Ekki er hægt að fá endurgreitt ef það eru færri en 7 dagar í að leigutímabilið hefjist, óháð
því hvenær básinn var pantaður.
Verð og þóknun
- Leigjandi greiðir fast leiguverð fyrir plássið samkvæmt gildandi verðskrá Lækjartorgs
- Öll verð eru með VSK nema annað sé tekið fram.
- Þóknun (22%) verður sjálfkrafa dregin frá samanlagðri heildarsölu, áður en
söluhagnaður er greiddur út til leigjenda.
Sérpantanir og magnkaup
- Öll sala sem á sér stað í gegnum Lækjartorg, þar á meðal pantanir sem gerðar eru á
staðnum en afgreiddar síðar, skal fara í gegnum greiðslukerfi Lækjartorgs. - Þetta á einnig við um sérpantanir og magnkaup sem verða til vegna kynningar eða
samskipta á Lækjartorgi. - Lækjartorg hefur samband við leigjanda vegna slíkra pantana en salan og greiðslan fara
að fullu í gegnum Lækjartorg. - Leigjanda er óheimilt að taka við greiðslum eða gera upp sölu sjálfur. Þetta á bæði við um
vörur sem eru seldar á staðnum og sölur sem koma í gegnum Lækjartorg.
Gjöld og verðskrá
- Fast leigugjald fyrir pláss samkvæmt verðskrá.
- Þóknun 22% af heildarsölu.
- Afgreiðslugjald vegna ofhleðslu á plássi eða af öryggisástæðum:12.000 kr.
- Afgreiðslugjald við frágang án samkomulags: 30.000 kr.
- Geymslugjald eftir lok leigu: 2.500 kr./pr. dag, að hámarki 7 daga. Ath.: Núgildandi verð og önnur gjöld sem kunna að bætast við eru tilgreind í verðskrá sem er birt á heimasíðu Lækjartorgs. Öll gjöld samkvæmt þessum skilmálum eru hluti af samningi og geta tekiðbreytingum með gildandi verðskrá á hverjum tíma.
Sjálfstæður rekstur og skattskil
- Ef fyrirtæki eða einstaklingar með virðisaukanúmer leigir rými innan Lækjartorgs fyrir
rekstur sinn ber leigjandi sjálfur ábyrgð á að skila inn réttum skattaupplýsingum og gera
skattskil í samræmi við lög. - Ef leigjandi ætlar sér að selja vörur með virðisauka ber að tilkynna það við bókun á
plássi.
Í upphafi leigutímabils (uppsetning)
- Leigjandi má koma með vörur til uppsetningar a.m.k. 1 klst. fyrir lokun daginn fyrir
bókaðan leigudag eða 30 mínútum fyrir opnun fyrsta dag leigutíma (eða skv.
sérstökum leiðbeiningum frá Lækjartorgi). - Ef ekki hefur verið mætt eða haft samband fyrir klukkan 14:00 fyrsta dag leigu áskilur
Lækjartorg sér rétt til að leigja plássið öðrum.
Vöruskráning, verðmerking og upplýsingagjöf
- Allar vörur skulu vera skýrt verðmerktar og þar sem við á skal merkja númer á plássi.
- Ef vara færist milli borða/hillu skal uppfæra miða tafarlaust.
- Óheimilt er að setja upp villandi verðupplýsingar (t.d. röng verðbil).
- Ráðlagt er að hafa lýsandi heiti (tegund, lit, stærð) til að auðvelda sölu og eftirfylgni.
- Starfsfólk getur aðstoðað með prentun miða, en ábyrgð á réttu verði/heiti er alltaf hjá
leigjanda.
Auglýsingar á vörum
- Leigjendur eru hvattir til að kynna vörur á eigin miðlum. Markaðurinn getur endurbirt
efnið á samfélagsmiðlum eftir atvikum. - Vefbirting vöru/mynda og netpöntun er í boði ef/þegar slík þjónusta er virk hjá
Lækjartorgi. - Leigjendur sem bóka pláss í 4 vikur eða lengur fá auk þess birtingu á skjá í glugga sem
snýr út á Lækjartorg.
Skipulag, áfylling og snyrtimennska
- Leigjandi ber ábyrgð á snyrtilegri framsetningu og reglulegri áfyllingu.
- Ofhleðsla er óheimil (troðningur/óaðgengi). Sé bás ofhlaðinn má Lækjartorg taka hann
niður án fyrirvara; afgreiðslugjald 12.000 kr. - Starfsfólk tekur létta tiltekt eftir þörfum (rétta af og fjarlægja rusl).
- Lækjartorg getur sett sanngjörn viðmið um hámarksmagn miðað við pláss og öryggi.
- Starfsfólk getur beðið um fækkun vara ef aðgengi eða öryggi er skert.Ath.: Lækjartorg ber ekki ábyrgð á vörum komi til tjóns við frágang eða tiltekt.
Umgengnisreglur og breytingar á búnaði
- Ekki er heimilt að festa, bora eða líma við loft, gólf, borð, hillu eða vegg nema með
skriflegu leyfi. - Vörur mega ekki standa utan afmörkunar (utan á borðum, úti á gólfi eða hliðina á
hillum). Slíkar vörur geta verið fjarlægðar án fyrirvara. - Lækjartorg er ekki staður fyrir innfluttar massavörur eða aðrar fjöldaframleiddar vörur;
áhersla er lögð á handverk, hönnun, list og vandað úrval.
Gæðakröfur
- Allar vörur sem seldar eru á Lækjartorgi skulu vera í góðu ástandi og uppfylla viðmið um
snyrtimennsku, gæði, frágang og framsetningu. - Vörur þurfa að vera í góðu ástandi, heilar og hreinar og sýna fram á faglega og listræna
nálgun. - Mat á því hvort vara eða framsetning uppfylli viðmið er alfarið á höndum Lækjartorgs.
- Lækjartorg áskilur sér rétt til að fjarlægja vörur sem ekki uppfylla þessi gæðaviðmið.
Óskilavörur og eftirlit
- Finnist vara án miða eða rangt staðsett er hún lögð til hliðar hjá afgreiðsluborðinu.
- Varist að líma verðmiða beint á viðkvæmar vörur sem geta skemmst þegar hann er tekinn
af; notið miða/spjöld sem þola flutning. - Ómerktar vörur eru geymdar í allt að 20 daga. Að þeim tíma liðnum áskilur Lækjartorg
sér réttinn til að ráðstafa þeim. - Leigjandi er hvattur til að fylgjast sjálfur með vörum sem eru teknar til hliðar.
- Húsnæðið og leigurýmið er vaktað með starfsfólki og öryggismyndavélum.
Ábyrgð og tryggingar
- Lækjartorg ber ekki ábyrgð á stolnum, týndum eða skemmdum vörum né tjóni af
völdum elds eða vatns. - Leigjandi ber sjálfur ábyrgð á vörunum sínum og getur tryggt þær sérstaklega hjá sínu
tryggingafélagi. Lækjartorg tryggir ekki vörur annarra og ber enga bótaskyldu.
Viðvera leigjanda á Lækjartorgi
- Leigjandi sem velur að hafa viðveru á Lækjartorgi t.d. til að kynna vörur sínar raða upp
eða fylla á, telst ekki starfsmaður Lækjartorgs. - Slík viðvera skapar hvorki rétt til launa né annarra starfstengdra réttinda.
- Slík viðvera skapar hvorki ráðningarsamband né réttindi samkvæmt vinnurétti eða
tryggingum Lækjartorgs. - Leigjandi ber sjálfur ábyrgð á eigin heilsu, öryggi og tryggingavernd meðan hann er
með viðveru á Lækjartorgi.
Breyting á verði og afslættir
- Leigjandi breytir verði með nýjum verðmiða áður en vara er seld. Vara selst á því verði
sem gildir í kerfi eða á miða þegar sala á sér stað. - Óheimilt er að handrita verð á prentaða miða; slíkir miðar teljast ógildir.
- Afslættir á vörur innan leigueiningar (t.d. 25% / 50% / 75%) eru settir á í samráði við
starfsfólk eða í kerfi (ef í boði). Óski leigjandi eftir sérprósentu skal senda beiðni með
nafni, básnúmeri og prósentu. - Ekki er heimilt að veita afslátt eingöngu á tiltekna viðskiptavini eða með afsláttarkóða.
Uppgjör söluhagnaðar
- Lækjartorg heldur eftir 22% þóknun af seldum vörum; síðan er hagnaður greiddur á
reikning leigjanda sem skráður er hjá okkur. - Uppgjör fer fram eftir lok leigutímabils þegar bás hefur verið tæmdur og upplýsingar
liggja fyrir.
Tilfærsla og framlenging
- Nýtt leigutímabil er bókað sérstaklega.
- Ef skipt er um bás þarf að uppfæra verðmiða svo vörur skili sér í réttan bás.
- Leigjandi ber ábyrgð á að réttir miðar/verð fylgi vörum eftir flutning.
- Ef óskað er eftir framlengingu á leigu þarf sú beiðni að berast að lágmarki 3 dögum fyrir
lok vikuleigu, 6 dögum fyrir lok 14 daga leigu og 2 vikum fyrir lok 28 daga leigu. Ekki er
hægt að tryggja áframhaldandi leigu á sama plássi en möguleikinn verður meiri þegar
fyrirvarinn er lengri.
Framlenging leigu – fyrirvari
- Við framlengingu á leigusamningum áskilur Lækjartorg sér rétt til að hafna
framlengingu ef lítil sala hefur átt sér stað í leiguplássinu yfir leigutímabilið. - Ákvæðið er sett til að tryggja góða hringrás vara, að sölusvæði sé virkt og að nýir aðilar
fái tækifæri til að koma inn. - Lækjartorg tilkynnir leigjanda með sanngjörnum fyrirvara ef ákvörðun er tekin um að
samningi verði ekki framlengt á þessum grundvelli.
Lok leigutímans og frágangur
- Leigjandi skal láta vita í afgreiðslu áður en byrjað er að taka niður vörur og ganga frá
leiguplássinu. - Leigupláss skal vera tæmt og hreint í síðasta lagi 1 klst. fyrir lokun á síðasta degi
leigutímans. - Ef leigjandi hefur ekki samið sérstaklega um pökkunarþjónustu og starfsfólk Lækjartorgs
þarf að tæma plássið og pakka vörunum niður, er innheimt afgreiðslugjald að upphæð
30.000 kr. - Geymsla eftir lok leigu: allt að 7 dagar, 2.500 kr./dag. Að 7 dögum liðnum getur
Lækjartorg ráðstafað vörunum. Geymslugjöld dragast frá hugsanlegum útgreiðslum. Ef
enginn söluhagnaður er til að mæta gjaldinu, ber leigjandi ábyrgð á að greiða gjaldið
beint.
Eignaréttur og vöruskilmálar
- Leigjandi ber fulla ábyrgð á eignarrétti og lögmæti vara. Óheimilt er að selja:
- Ólöglegar, skaðlegar, hættulegar. falsaðar eða stolnar vörur.
- Vörur sem starfsfólk og rekstraraðilar Lækjartorgs meta ósamræmanlegar ímynd
og gæðum Lækjartorgs (t.d. illa lyktandi, óhreinar eða skemmdar vörur). - Notaðar vörur og aðrar vöru sem vinsælt er að selja á nytjamarkaði.
- Fjöldaframleiddar og/eða aðfluttar vörur keyptar frá lágvörurverðsíðum eða
netverslunum á borð við Temu, Shein, Amazon, AliExpress, Wish eða öðrum
sambærilegum vefverslunum. - Vörur sem eru sérstaklega framleiddar til endursölu sem lagervara og falla ekki
undir handverk, hönnun eða list. Vörur sem eru endurseldar án þess að
listamaðurinn setji mark sitt á vöruna eða noti hana til listsköpunnar. - Matvæli í öllu formi.
- Tóbak, áfengi, vopn, flugelda, klámfengið efni eða notaðar snyrtivörur
Greiðslur og persónuvernd
- Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslumiðlun; Lækjartorg geymir ekki
kortaupplýsingar. - Leigjandi og kaupendur skulu meðhöndla persónuupplýsingar í samræmi við lög.
- Lækjarkort veitir viðskiptavinum trúnaðarvernd og afhendir ekki gögn til þriðja aðila
nema að lög krefji. - Lækjartorg vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög, þar á meðal
persónuverndarlög nr. 90/2018, reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR) og eigið verklag.
Breytingar, endurskoðun og frávik
- Lækjartorg áskilur sér rétt til að gera breytingar á skipulagi, búnaði, opnun, verðskrá og
ferlum ef þörf krefur. - Skilmálar Lækjartorgs eru endurskoðaðir reglulega og geta tekið breytingum án fyrirvara
fyrir nýjar bókanir. Ef breytingar hafa áhrif á bókun sem þegar er skráð en ekki hafin,
verður leigjanda tilkynnt með minnst 7 daga fyrirvara. Leigjandi getur þá sagt bókuninni
upp án kostnaðar fram að upphafsdegi. - Sérstök frávik frá skilmálum gilda aðeins ef þau eru skriflega staðfest.
Lög og varnarþing
- Samningur þessi lýtur íslenskum lögum. Mál vegna hans skulu rekin fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Opnunartími
Alla daga frá 10:00 til 18:00.
Breytilegur opnunartími á helgidögum.
Staðsetning
Lækjartorg 5 – inngangur frá Lækjartorgi.
Samfélagsmiðlar
Fyrirtækið
1218 ehf
kt: 510422-1200
vsk: 144460
info@laekjartorg.is
© 2025 Lækjartorg
System & Design by Pro Solutions ehf