Upplýsingar
Innifalið í leigu
- Starfsmaður sem sér um alla afgreiðslu og þjónustu
- Afgreiðslukerfi og verðmiðar
- Pláss sem þú þarft ekki að tæma eða losa innan leigutímabilsins
- Aðgangur að sameiginlegu eldhúsi og salerni
- Þitt eigið svæði í sölukerfinu þar sem þú skráir vörurnar með verði og getur fylgst með
sölunni í rauntíma. - Birting á samfélagsmiðlum Lækjartorgs eins og Instagram og Facebook.
- Auglýsingaskjár er í boði fyrir þá sem eru í mánaðarleigu eða lengur. Við kynnum verkin
þín á skjá í glugganum sem keyrir allan sólarhringinn. Við tökum myndir af svæðinu þínu og getum einnig birt efni frá þér, t.d. myndband af vinnuferlinu.
Hlutverk listamannsins
Til að tryggja að allt gangi hnökralaust fyrir sig þarft þú sem seljandi vörunnar að:
- Skrá vörurnar með réttu nafni, verði og lýsingu í sölukerfið.
- Verðmerkja allar vörur með merkimiðum sem þú færð útprentað hjá okkur.
- Fylla á vörur eftir þörfum.
- Halda þínu rými hreinu og snyrtilegu þannig að heildarmynd markaðarins endurspegli
gæði vörunnar.
Ferlið frá A–Ö
- Skráning í gegnum netfang info@laekjartorg.is – Þar þarf að koma fram hver bókar, hvernig leigueiningu (hilla eða borð) er óskað eftir. Einnig þarf að senda inn upplýsingar um vörurnar sem á að selja og myndir til staðfestingar.
2. Staðfesting á skráningu kemur frá starfsfólki Lækjartorgs innan 3–5 daga.
3. Samningur undirritaður og skilmálar samþykktir.
4. Greiðslu þarf að inna af hendi áður en leigutímabil hefst.
5. Leigjandi býr svo til aðgang inn á laekjartorg.is. og skráir allar vörur þar inn með
nákvæmum lýsingum og verð.
6. Afhending leiguplássa getur verið með tvennum hætti. Leigjandi má koma með vörur til
uppsetningar a.m.k. 1 klst. fyrir lokun daginn fyrir bókaðan leigudag eða 30 mínútum fyrir
opnun fyrsta dag leigutímabils.
7. Afgreiðslan er ávalt í höndum starfsmanna Lækjartorgs og salan fer í gegnum greiðslukerfi
Lækjartorgs.
8. Við lok leigutímabils upplýsir leigjandi starfsfólk Lækjartorgs áður en niðurtaka hefst.
Leiguplássið á að vera tómt og hreint í síðasta lagi 1 klst fyrir lokun á síðasta degi
leigutímabilsins.
9. Ef óskað er eftir framlengingu á leigu þarf sú beiðni að berast að lágmarki 3 dögum fyrir lok
vikuleigu, 6 dögum fyrir lok 14 daga leigu og 2 vikum fyrir lok 28 daga leigu. Ekki er hægt að
tryggja áframhaldandi leigu á sama plássi en möguleikinn verður meiri þegar fyrirvarinn er
lengri.
Leiguverð
Vetrarverð frá Október – Apríl
28 dagar 49.000 Kr m/vsk fyrir heilt pláss.
28 dagar 14.900 Kr m/vsk fyrir 1/4 pláss.
Sumarverð frá Maí – September
28 dagar 75.000 Kr m/vsk fyrir heilt pláss.
28 dagar 25.000 Kr m/vsk fyrir 1/4 pláss.
Opnunartími
Alla daga frá 10:00 til 18:00.
Breytilegur opnunartími á helgidögum.
Staðsetning
Lækjartorg 5 – inngangur frá Lækjartorgi.
Samfélagsmiðlar
Fyrirtækið
1218 ehf
kt: 510422-1200
vsk: 144460
info@laekjartorg.is
© 2025 Lækjartorg
System & Design by Pro Solutions ehf